Psalms 64

1Til söngstjórans. Davíðssálmur. 2Heyr, ó Guð, raust mína, er ég kveina, varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins. 3Skýl mér fyrir bandalagi bófanna, fyrir óaldarflokki illvirkjanna, 4er hvetja tungur sínar sem sverð, leggja örvar sínar, beiskyrðin, á streng 5til þess að skjóta í leyni á hinn ráðvanda, skjóta á hann allt í einu, hvergi hræddir. 6Þeir binda fastmælum með sér ill áform, tala um að leggja leynisnörur, þeir hugsa: ,,Hver ætli sjái það?`` 7Þeir upphugsa ranglæti: ,,Vér erum tilbúnir, vel ráðin ráð!`` því að hugskot hvers eins og hjarta er fullt véla. 8Þá lýstur Guð þá með örinni, allt í einu verða þeir sárir, 9og tunga þeirra verður þeim að falli. Allir þeir er sjá þá, munu hrista höfuðið. 10Þá mun hver maður óttast og kunngjöra dáðir Guðs og gefa gætur að verkum hans. [ (Psalms 64:11) Hinn réttláti mun gleðjast yfir Drottni og leita hælis hjá honum, og allir hjartahreinir munu sigri hrósa. ]
Copyright information for Icelandic